Klakinn

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

COSTA RICA

Meira en hálfnað!!!

07. ágúst 2009 klukkan 00:42
Sumafríið búiiiiiið.. já elskurnar mínar, ekkert lúxus líf hérna, fékk bara 3 vikur í sumarfrí á meðan þið fáið 3 mánuði, reyndar óvenjulega langt sumafrí þetta árið eða viku lengur en venjulega því að ástandið á svínaflensunni er svakalegt hérna.. öllum grunnskólum og menntaskólum lokað í viku og mælt með að halda sig frá öllum fjölmennum stöðum eins og mollinu, tívolíinu og svona... seinast þegar ég vissi voru yfir 25 dánir hérna og talan yfir veikum fjölgar og fjölgar á hverjum degi, yfir 1000 á spítala núna og ég veit ekki hvað og hvað.. yfir 30 tilfelli hérna í næsta bæ, San Marcos sem ég fer til 1-2 í viku og fólk gengur um með grímur í skólanum, vinnunni .. Einn strákur í skólanum mínum á spítala fárveikur greyið, bekkjarbróðir systur minnar hérna, og honum er ekkert að batna :( :(! frekar hrædd en ég vona að þetta verði betra! 

En nenni ekki að væla um þetta kjaftæði lengur, sumafríið mitt var æði og ég gerði fullt fullt fullt af mér.. 

Til að byrja með skellti ég mér á ströndina í eina helgi með öllum nánustu vinum mínum hérna í kveðjuferð því þau fóru mánudaginn 2 vikuna í júlí.. Við semsagt fórum til Manuel Antonio sem er ein þekktasta ferðamannaströndin hérna og það var geggjað! Tókst reyndar að brenna eins og epli í marga daga, frekar vandræðalegt haha.. 
Við vorum á ströndinni í 3 daga og leigðum okkur íbúð, tanað á daginn og auðvitað kíkt í bæinn um kvöldið, fórum í strandarpartý og tókum miðnætursund í sjónum og voða kósí! Geðveik ferð, er búin að setja inn nokkrar myndir á facebook ef þið viljið sjá :)

Vikuna eftir það var bara slappað af og reyndi að nýta tímann með krökkunum áður en þau fóru. á fimmtudeginum hittumst við öll nánustu vinirnir í Cartago og tjilluðum í garðinum og fleira og þetta endaði á því að við fórum öll að gráta, meirasegja strákarnir, of sorglegt :(

Á föstudeginum kíkti ég svo í party hjá Andrew uppi hjá einkasundlauginni og Lupe og Cesar voru að halda upp á afmælin sín.. hittumst allur vinahópurinn hérna og fullt fleira fólk og héldum smá útidjamm og já þetta var skrautlegt, förum ekkert nánar út í þá sálma núna hehe :)!

Á laugardeginum fórum við Ingrid og Gabe á ball á "el arbolito" og héldum smá kveðjuparty fyrir Gabe litla, hittum fullt af fólki, fórum svo öll og gistum hjá Gabe í San Marcos.. 
Vöknuðum eldsnemma á sunnudeginum til að fara til San José eftir 2 tíma svefn og fórum ég, gabe, alicia og Ingrid heim til Aliciu í San José, fórum út að borða um kvöldið og slöppuðum af í íbúðinni, vöktum næstum alla nóttina spjallandi að reyna að nýta síðustu klukkutímana.. Mánudagurinn, vaknað klukkan 3 takk fyrir, til að keyra Gabe upp á flugvöll og kveðja hann og alla hina krakkana frá bandaríkjunum, svoooo leiðinlegt og sorglegt :(! nú er ég semsagt ein eftir í skólanum mínum.. 

Þriðjudagurinn, skellti mér í tívolíið með stórfjölskyldunni hérna, þrátt fyrir að stjórnvöld mæla alls ekki með því, en við hlustuðum ekkert á þau frekar en venjulega :), ótrúlega skemmtilegur dagur, mættum þangað upp úr 9 eftir 2 tíma rútuferðalag, fórum í öll tækin og fleira, borðuðum hádegismat og skelltum okkur svo í mollið upp úr 5 leitinu.. 

Miðvikudagurinn, loooooooksins heima! Hélt ég ætlaði ekki lengra af þreytu og lítinn sem engan svefn! Voða lítið að segja frá þessum degi.. þvoði föt, sem er stóórt verkefni hérna, í höndunum og læti og slappaði af með systrum mínum :)
Fimmtudagurinn tekinn snemma eins og venjulega, þá er ég að tala um sneeeeemma, svona upp úr 5.. fór í garðinn og beið eftir að rútan kæmi og pikkaði mig upp og ég fór með Aliciu, Ingrid og fullt af fleira hressu fólki til San Carlos de Alajuela, kíktum á fullt af frægum og flottum stöðum hérna og gistum svo á 5 stjörnu hóteli, of gott! Tjilluðum á sundlaugarbakkanum og fórum í spa sem var á hótelinu í nudd og andlitsmaska og svona :) fórum um kvöldið að kíkja á eldfjallið sem á að vera virkt núna en við hittum örugglega á eina kvöldið í öllum mánuðinum sem það var ekki virkt og allt dimmt og leiðinlegt, bömmeeeer... fórum svo heim seint á föstudagskvöldinu.. á fullt af myndum og hendi þeim inn þegar ég nenni :)! 

Laugardeginum fór ég til Ingridar og við kíktum á ball á Guayabal með nokkrum vinum og fögnuðum sumafríi eins og maður á að gera það, fórum svo heim til Ingridar og gistum þar og fórum svo í góóðan og langar göngutúr upp í San Pablo de  León Cortez ! Duglegu við :D! veitir ekki að að brenna þessari extra fitu sem ég er að bæta á mig hérna eins og ég fái borgað fyrir það haha, kem heim eins og kjötflykki! 

Þriðjudagurinn tekinn snemma aftur og fórum í annan göngutúr leeengst upp á fjall, þá meina ég lengst upp í rassgati!, allavega þá fórum ég Masziel, mamma, Lupe, Sorieli, Nolie og fullt af fleira fólki í 3 tíma göngutúr upp á fjall og stoppuðum svo þar og fórum í gott sólbað í 30 stiga hita og glampandi sól... fyrir algjöra tilviljun hittum við Lupe svo Willy upp á fjalli, hverjar eru líkurnar? og við spiluðum fótbolta og svona og svo löbbuðum við alla leiðina niður aftur! 

Á fimmtudeginum skellti ég mér svo í heimsókn til Helenar minnar til Cartago og gisti þar í 2 nætur.. fórum með Colin í mollið og fórum til Orosí í sund og svona kósí og skelltum okkur svo á kaffihús og spjölluðum vel og lengi um allt sem er í gangi hérna, frekar skrítið að tala íslensku svona mikið, fékk illt í kjálkana eftir á hahah.. 
Laugardagsmorguninn kom svo Helen með mér heim og við fórum í afmæli í Jardín, týpískt afmæli hérna, mikill matur, dans og fjör, vorum látnar dansa einhvern villimannadans með grímur og svo marengue og fleira.. mjög gaman! :) 
Tókum svo góðan göngutúr hérna í Santa María og um kvöldið fórum við á leiðinlegasta ball sem ég hef farið á.. þannig við fórum heim snemma og fórum í háttinn :) .. 
Snemma um morguninn á sunnudeginum þurfti Helen svo að fara heim og ég fór með Lupe að horfa á Tony og hina strákana keppa í fótbolta í frábæru veðri, fékk feitt og fallegt bóndafar, kom svo heim og gerði mig til fyrir skóóóólann

Mánudagur, skóli aftur!, gaman að hitta alla aftur og svona en jesús hvað það sökkar að þurfa að vakna klukkan 5.30 á hverjum morgni til að fara í skólann og hugsa til þess að þið eruð öll í sumafríi, útilegum og svona eeen það er bara hollt :)!
Þriðjudeginum um kvöldið kíkti ég til San Marcos með Ingrid og viti menn, tókst erlu ekki að týna veskinu sínu!.. týpiskt ég!!! allur peningurinn minn, kortin mín og allt, frekar mikið svekk og pirr!! leitaði út um allt en fann það hvergi..

Föstudeginum var frí í skólanum og mamma og maszi fóru til San Marcos og viti menn fundu þær ekki veskið mitt, reyndar án peninga og allt en með kortunum og svona, en voða tilgangslaust að eiga kort sem er búið að loka þannig ég er fátæk í augnablikinu, frekar slæmt! haha

Laugardeginum kíkti ég með Lupe og Kandy til San Marcos, óóógleymanlegur dagur, þær eru svo vitlausar þessi grey! fórum svo heim og kíktum í parquinn með Bielku, Karinu og Melinu og slöppuðum af, kíktum svo á enn eitt ballið, surprise surprise, án efa besta ball sem ég hef farið á! ooooof gaman! 
Sunnudagurinn tekinn snemma eins og alltaf og ég fór með sömu stelpum að horfa á lupe keppa, svo heim að lúlla sééér eftir góða helgi! auðvitað engin þjóðhátíðarhelgi eins og hjá ykkur hinum en samt gaman! :)

Já ekkert meira að segja í bili held ég
Ég hef nú samt mjög skemmtilegar fréttir að færa, ég ætla mér aldrei að koma heim aftur, ég er flutt hingað til eilífðar, en þið eruð velkomin að koma í heimsókn ef þið viljið :)
nei bara grín, en ég hefði samt ekkert á móti því að búa hérna, mamma og pabbi, þið kannski íhugið að flytja hingað :D??

og já eins og þið vitð einhver af ykkur þá á ég afmæli bráðuuum, kjellan verður 18 þann 09.09.09.. ef ykkur langar að bjalla í mig þá er númerið +50688678862 en plís ekki hringja fyrir klukkan 11.30 á hádegi á íslenskum tíma því þá er ég ennþá sofandi.. og ef einhvern langar að koma mér á óvart og senda mér pakka þá er heimilisfangið

Carlos Luis Marin Mata
5ö metros este del Cementero
Barrio el Rosal
Santa María de Dota
San José
Costa Rica


ooog eitt annað, hvað kom fyrir ykkur í kommentunum greyin mín? fyrst fékk ég svona 20 komment á hvert blogg en núna svona 4-5 ef ég er heppin, ekki aaalveg sátt, þið kannski nennið ekki að lesa bloggið mitt lengur haha? ég bara hætti að blogga ef þið nennið ekki að lesa! :)

En þangað til næst!!
Se cuidan! 

Erla :)

Diay, tanto tiempo!

18. júní 2009 klukkan 21:08
Eitt öflugt blogg mætt á svæðið þar sem ég er ekki búin að blogga í heila öld!
Ætla að gera mitt besta að rifja upp seinasta mánuð en er búin að gleyma fullt.. 

Þið þarna á íslandi lifið í sumri, hita og sól og allir voða glaðir á meðan ég lifi í rigningu á hverjum degi! Hvað er ekki til að elska, grenjandi rigning, hef svona án gríns aldrei séð annað eins, þrumur og eldingar á hverjum degi.. já ég veit þið hugsið fallega til mín á meðan þið eruð í sólbaði og sundi og svona :)
neinei ekkert væl mér finnst rigningin góð! 
En það er engin rignin á ströndinni þannig ég ætti að lifa í nokkra mánuði í viðbót;)

En út í aðra sálma!, fullt að gerast hérna eins og venjulega, alltaf eitthvað nýtt í gangi.. 
Cartago er stoppistöð næstum hverja helgi og gert einhver vitleysa þar eins og venjulega..

Fjölskyldan ákvað líka að skella sér uppí bústaðinn okkar og jeeesús hvað umhverfið þarna er fallegt! fórum á laugardeginum og gistum þar og gerðum allt sem maður á að gera í bústað, eldað, spilað, sungið og sofið á gólfinu! Gerist varla betra! 

Ég hef stundað það næstum hverja helgi að gista hjá Ingrid í San Pablo og við gerum alltaf eitthvað villt og skemmtilegt. Ég og Tessi gistum hjá Ingrid um daginn og vorum með frábært stelpukvöld. Meira en nóg af kökum því erum ekki að fitna nóg, eða þannig..  og svo skelltum við okkur niðrí miðbæ San Pablo á bar með nokkrum vinum og fórum svo heim í kósí tjill í stóra rúminu að horfa á imbann aaaaalla nóttina :)

Einn góðan sunnudag ákváðum við Mamma og Mazsii að skella okkur upp í fjöllin þar sem fossin er og eyddum öllum deginum þar, mamma hélt veislu og var að elda  og fullt af vinum og vandamönnum komu að horfa á leikinn og svona..

CANOPY! jeesús aldrei upplifað annað eins hahah.. semsagt þá fórum við "hópurinn" af skiptinemum saman í canopy, hef ekki gvend hvernig maður segir þetta á íslensku en þið skiljið vonandi, allavega þá fórum við; Helen, Beggi, Gabe, Tessi, Ingrid, Mitch, Bryndís, Erika, Colin, Zach, Gunnar og Magdi í dagsferð með bróður mínum upp í fjall og fórum í allskonar dæmi sem er EKKI fyrir lofthrædda.. tjah endaði ekkert of vel hjá mér en ég fór samt í flest allt sem þeir buðu uppá.. klifraði upp í svona 35 metra tré og hoppaði niður og fleira gaman! endaði í algjöru sjokki en þetta var fokk gaman! Um kvöldið fórum við á ball í San Marcos og gistum á hóteli þar og svo kom Helen með mér heim um kvöldið :) Ekkert smá góð helgi!!

Miðvikudagar, uppáhalds dagarnir mínir þar sem við hittumst alltaf í San Marcos og gerum eitthvað saman við Los Santos fólkið. Einn góðan miðvikudag fórum við á "la taberna" ég, Tessi, Ingrid, Gabe, Mike, Brhandon, Cooper og Willy og horfðum á Costa Rica vs. USA.. góð tilfinning að horfa á greyið USA tapa og allir að öskra á greyið gabe (því hann er frá usa) og greyið litla alveg í sjokki.. og ég vann pening því ég veðjaði á costa rica! ;) vei 

Jújú svo er auðvitað farið til San José þegar það er ekki skóli og kíkt í mollið og fleira gaman! kíkti með Ingrid og Evan í Mall San Pedro og við versluðum, fórum í bíó og já mamma fleymdi að segja þér fékk mer gat i naflann aftur :)... 

Skólinn alveg að gera sig þessa dagana eða þannig hahah.. prófatímabil í gangi og við skulum ekkert ræða einkunnirnar mínar neitt frekar hah! 8 af 100 í "biología", 27 af 100 í spænsku, 10 af 100 í "Quimica" og "tourismo con Grettel", 4 af 100 í stærðfræði og fleira gourme! sumir kennararnir meirasegja sleppa því að gefa mér einkunn því þetta er svo slæmt hahah.. en juju auðvitað 100 af 100 í ensku og "tourismo á ensku" :) stolt

Ætla líka stolt að deila því með ykkur að mér tókst að semja lag með Gabe, frekar mikið góð frammistaða! Sömdum þetta frábæra lag um okkur tessi, ingrid og gabe, nánustu vinina hérna.. ég kannski hendi inn vídjói af því á facebook bráðum! :)

Nóg að gera næstu daga og vikur! Er loksins að fara í sumarfrí í 2 vikur fyrstu 2 vikurnar í júlí og það verður ferðast og slett úr klaufunum.. planið að fara í útilegu með vinum mínum héðan einhverja helgina leeeengst uppí fjalli, stöndin með skiptinemunum í heila helgi til að kveðja þau sem eru hérna í hálft ár, fara til San Isidro að heimsækja Begga með Helen og hafa smá íslendinga reunion og fara á ströndina aftur, San josé með aliciu, Limón að læra að kafa og surfa með ingrid og fjölskyldunni hennar og tortuguero eftir það, ströndin með systkinum mínum að tana,ball næsta laugardag til að halda upp á afmælið hans Brhandons, afmæli heima hjá Willy á föstudeginum og fleeeeeira!
Hef ekki gvend hvernig ég ætla að fitta þessu öllu inn í 2 vikur en þetta reddast :D!!!

Næsta blogg verður örugglega ekki fyrr en eftir mánuð eða eitthvað ef ég þekki mig rétt, en það verður eðal stykki og myndir og fullt fleira þannig fylgisti með! :)

Bueno mis amores! Hasta Pronto :*

Erla Björk Jónsdóttir

Mi vida aqui :)

12. maí 2009 klukkan 20:12
Ég nenni ekki að blogga nanananaaa en ég ætla að gera það samt :)

Ég er búin að átta mig á því að lífið í paradís er ekki alltaf jafn gott... heimþráin er búin að gera vart við sig undanfarið en ekkert alvarlegt, þið eruð ekki svona skemmtileg þarna hinumegin :) hehe En ég ætla ekki að kæfa ykkur með leiðinlegu hjali þannig jááá smá úrdráttur úr lífinu hérna :)

Second Orientation; ójááá gaman, skrítið, fullt af skemmtilegheitum, fullt af drama, fullt af frábæru fólki og nokkur fífl og ég gæti haldið endalaust áfram en ætla að láta þetta gott heita í bili og sleppa því að útskýra! en já það var semsagt mjög gaman í heildina litið og æði að hitta alla aftur. Fórum á þennan geggjaða stað og gistum þar í 2 nætur og hittumst allir skiptinemarnir sem eru hérna í Costa Rica núna, vorum uþb. 115 kvikindi. Fórum í fullt af "skemmtilegum" leikjum, stunduðum það að sitja á gólfinu í marga tíma og hlusta á fyrirlestra og svo auðvitað party á kveldin! Awesome helgi :D

Vikan á eftir Veeeeeeikindi!! mjög slæmt. Var lasin í heila viku og mátti ekki fara út úr húsi, gerðist pillufíkill þar sem ég þurfti að taka svo mörg lyf og já mjög gaman mjög gaman, en mér batnaði á endanum eftir margar heimsóknir til læknanna hérna sem eru alveg virkilega heimskir (taka óléttupróf þegar maður er með hita og beinverki) og flestir mjög dýrir....

Helgin, stalst út þrátt fyrir veikindi og skellti mér til San José með systkinum mínum (-Tato) og við fórum í bíó og mollið og áttum góðan dag :) Mjög gaman, tókum fullt af myndum og svona. Sunnudagskveldið kíkti ég á Karaokibar með systu og vinum hennar. Ákvað að vera mjög sniðug og sleppa því að syngja öllum til mikillar ánægju hahah !

Skóli skóli skóli og engin skóli á fimmtudeginum vei :) og já við útlendingarnir hérna í Los Santos (Ég, Ingrid, Tessi og Gabe) ákváðum að gera okkur góðan dag og fara til Cartago að gera eitthvað sniðugt  kíktum í nokkrar búðir í geðveiku veðri 25 stiga hiti og gourme sól, og fórum síðan að kíkja á Las Ruins  og viti menn fengum við ekki að fara inn! :D
Las ruins eru svona rústir sem eru bara opnar 1 dag á hverju ári og það er mjög sjaldan sem fólk fær að fara inn fyrir utan þennan dag en við fengum það þar sem að vörðurinn var svo indæll :) ekkert smá fallegt þarna inni!:)

Helgin eftir var awesome! föstudagurinn var tekinn í tjill með múttu og systu og horft á mynd og haft það kósí og á laugardeginum kom Gunnar í heimsókn til okkar og við fórum til San Marcos (næsti bær) og tjilluðum þar í nokkra tíma ég Gabe Ingrid og Gunnar og svo fórum við Ingrid heim til mín að gera okkur til fyrir djamm um kveldið. Skelltum okkur á ball og hittum alla yndislegu vini okkar og við dönsuðum og kjellan lærði að dansa Salsa! frekar mikið stooolt sko :D var samt örugglega eins og einfætt gamanmenni þarna á dansgólfinu en þetta kemur allt saman hahaha! 
Ingrid kom og krassaði hjá mér og morguninn eftir skelltum við okkur til San Marcos að kíkja á "la feria" veit ekki hvernig maður segir það á íslensku. Og það var svona mótorkross keppni og allskonar tjöld sem selja mat og allskonar drasli til að kaupa... fórum svo í ísbúðina sem við stundum af krafti og fengum okkur bananasplit í svona 153 skipti síðan við komum hingað... engin furða að ég er að verða feit... oooog svo tók ég rútuna heim með Magdi :) gaman að vita ekki satt haha

Annars er allt gott að frétta af mér hérna og jesús ég trúði þessu ekki þegar ég kom hingað en ég er farin að tala spænsku án þess að hugsa og hún bara flýgur út úr mér... reyndar mjög vitlaust en það skiptir ekki öllu máli þetta kemur allt ;) 
Ég komst líka að því að það er hægt að sólbrenna illa þótt það sé engin sól, alveg skýjað og rigning... jááá alltaf gaman að læra eitthvað nýtt! 

Jæja nenni ekki meira í bili! stutt og sætt blogg núna :D

Og fólk! nenniði að senda mér fréttir af íslandi! mig langar að vita hvað er í gangi þarna á klakanum og hvað er búið að gerast síðustu 3 mánuði :)

Sakna ykkar allra og vina að þið hafið það gott <3
Björk :)

Los Ticos Son Ricooos mae!!

21. apríl 2009 klukkan 02:02

Loksins blogg jajaja! 

Ég veit, langt síðan síðast en þið hafið gott af því að bíða..
Það er svo margt búið að gerast síðan síðast og tíminn líður hraðar en ég veit ekki hvað! Svona til að fræða ykkur þá er strax búið 1/4 af dvölinni hérna! :O

En jæja nóg af þvælu ooog nú kemur heill mánuður í grófum dráttum ;D

Síðastu helgin í mars var eitthvað svaka festival hérna í bænum og það var settur upp svona flóamarkaður og breiðtjald og stórt svið fyrir framan coopedota sem er miðpunkturinn í bænum og fremasta verksmiðja í heimi sem framleiðir kaffi.. allavega þá var svaka veisla alla helgina, fullt af fólki og voða gaman.. á föstudeginum kíkti ég þangað með Lup og Gabriel því strákarnir voru að spila .. hljómaði ekkert aaaalltof vel en maður býst ekkert við svaka framistöðu þegar 15 fífl koma saman og spila á lúðra og trommur haha en þeir voru ágætir greyin..
Laugardagurinn; skellt sér þarna niðreftir aftur að horfa á Mexico - Costa Rica á breiðtjaldinu með stelpunum mínum .. CR tapaði reyndar því miður :( 
Um kvöldið var svaka ball og jiiiiiminn hvað  það var gaman! Allir sem ég þekki voru mættir á svæðið því Kénald minn átti afmæli og það var dansað langt frameftir nóttu.. Ég verð bara að segja ykkur að þið eruð að missa af miklu þarna heima þar sem enginn spilar REGGEATON! án efa besta tónlist í heimiiiiii... Gotta love it! <3
Sunnudaginn skelltum við Gabe okkur til Cartago að heimsækja Helen, Zach og Gunnar.. fyrsta sinn sem við ferðuðumst ein hérna og það gekk eins og í sögu.. nema við týndumst nokkrum sinnum og misstum næstum því af síðustu rútunni heim en þetta reddaðist eins og venjulega :D
Við tjilluðum þarna í nokkra góða klukkutíma og löbbuðum um borgina og fleira vooooða gaman! alltaf gott að hitta litla íslendinginn minn og nokkra gringos og sletta úr klaufunum :D


<



Semana Santa!! eða páskafríið okkar sem er ein vika.. 
Fyrstu helgina fór ég til San José með Aliciu (trúnaðarmanninum okkar), Gabe, Rodolfo og fleirum og við gerðumst þessir fínu túristar þar sem þau vildu endilega kíkja á einhver söfn og Teatro National.. alveg ágætt þar skuuu. Um kvöldið skelltum við okkur í bíó í stærsta bíóhúsi sem ég hef séð.. 20 og eitthvað salir... og ég týndist :( en ég fann mig áður en myndin byrjaði! sáum þessa awsome mynd! en ég man ekki hvað hún heitir haha.. Sunnudagurinn var tekinn snemma og farið í Kaþólska messu, já góðir hálsar það er sko öðruvísi en á íslandi haha! allir mættu með svona pálmagrein því það var pálmasunnudagur og veifuðu þeim út um allt og kirkjan leit út eins og frumskógur og það var svaka athöfn þegar presturinn og svona 100 fleiri löbbuðu inn með styttu af jesú á asna og það voru reykvélar útum alla kirkju og lætiiii haha..

Mánudagur, rise and shine klukkan 6 í páskafríi, gerist varla betra! og haldið upp í El Rodeo þar sem familyan hennar muttu býr og við sóttum Franchescu og við stöllurnar skelltum okkur í sveitt og gott sólbað það sem eftir var af deginum, Thats life baby! 





Miðvikudagur; kaþólsk messa again, how fuuuuun.. nat. Eftir það skelltum við Gabe okkur til San Marcos að hitta Ingrid og Teresu og við fórum að veeeeersla! enda með þetta fína burðardýr með okkur hann Gabe..án efa Geðveikur dagur, við skemmtum okkur svo vel! :D







Skírdagur.. eða eggjadagurinn eins og ég ætla að kalla hann héðan í frá! Fórum við ömmu og afa að borða og öll stórfjölskyldan stödd þar á bæ og við borðuðum egg egg egg egg og meiri egg æj hvað heitir það þegar maður setur eggin á pönnu og steikir þau... man ekki hvernig á að segja það :/ ... allavega þið skiljið vonandi! við borðuðum 5 svoleiðs egg á mann takk fyrir og þið getið varla ýmindað ykkur hvað mér var illt í maganum eftir á eeeen þetta er víst hefð!

Föstudagurinn langi.. fórum í einhverja skrúðgöngu um bæinn þar sem var verið að líkja eftir því þegar Jesús var krossfestur og síðan fórum við í hádegismat hjá hinni ömmu minni og afa og það voru étin getiði hvað :D! EGG!! mmm 5 egg í viðbót og meiri illt í magann :)  Kvöldið var tekið í tjill og við horfðum á mynd ég Rosa, Juan og Jonathan voðalega kósí.

Helgin var fííín sku.. annað matarboð hjá fjölskyldunni og fleiri EGG!! en bara 4 í þetta skiptið... og tjill allan daginn með frændsystkinunum minum Masziel, Mario, Misael, Lupe og Pablo, ógó kósí :) Party í húsinu mínu um kvöldið og húsið fylltist af vinum bræðra minna og voða fjör þar á bæ, Arna þú kannski manst eftir því hahahah ;) 
Sunnudagur, haldið til Cartago að hitta Zach, Gunnar og Helen aftur.. litla annanhvernsunnudags hefðin okkar er alveg að gera sig. Smá tjill, spjall og túristastælar.. alltaf gaman að hitta þessar elskur :) og ekki verra að geta tjáð sig aðeins á íslensku við Helen! hún er ekki alveg að gera sig þessa dagana, ég á ekki til orð ég er búin að gleyma svo mörgum orðum! þetta er alveg ferlegt haha.. 

Helgin eftir þaaað MONSTERJAM!! svona fyrir þá sem ekki vita hvað það er þá er það bílasýning með svona trukkum sem gera allskonar listir og enda svo á því að rústa hvor öðrum og voða fínt :) anyways þá fór ég á það með fullt af feitum og fallegum skiptinemum, Helen, Zach, Gunnar, Gabe, Mitch, Erika, Magdalena og ég.. Hellaður dagur!!!





Skólinn gengur sinn vanagang og allt og allir voða vitlausir þarna.. get ekki fyrir mitt litla líf talið öll skiptin sem ég er búin að roðna í tætluuur inní tíma því þau eru að babbla eitthvað við mig á spænsku og ég skil ekki baun og allir hlæja að mér eða ég segi eitthvað bandvitlaust á spænsku sem þýðir allt annað en ég ætlaði að segja t.d. þegar það kom smá jarðskjálfti og ég ætlaði að vera voða sniðug og segja að það væri jarðskjálfti og voða sátt með lífið sagði ; Está Templado!! sem þýðir víst ertu graður í staðin fyrir esta tiemplo sem er það er jarðskjálfti haha.. en þetta er allt að venjast hægt og rólega ;)

Fjölskyldan mín hérna er best! fyrir utan fjölskylduna mína á íslandi <3 ég er án gríns svo heppin með fjölskyldu og myndi ekki skipta fyrir 5 aura :)
Ég er að lifa lífinu alveg til hins ýtrasta hérna og er svooo ánægð! Ekki búast við mér heim aftur heheh.. neinei ég segi svona, ég kíki kannski í heimsókn einhvertíman þegar ég nenni :) 

Annars er þetta orðið nokkuð langt og gott blogg!!

Elsku litlu rúsínurnar mínar.. það er eins gott fyrir ykkur að þið standið ykkur betur í kommentunum en síðast!! annars hætti ég að blogga :D

Sakna ykkar allra í tætlur :*
Erghla eða eeerla (ekki erdla eins og á íslandi) þau bera nafnið mitt fram svona greyin :)

rumlega manuduuur..

20. mars 2009 klukkan 22:13
ooooog hún ákvad ad blogga :)

Lífid hérna í paradís er aedi.. madur kvartar allavega ekki yfir 25-30 stiga hita og sól alla daga nema jú í skólanum.. ekkert skemmtilegt ad sitja inní skólastofu thar sem hitinn gaeti mogulega drepid fil..
Ég er búin ad eignast fullt af nyjum vinum herna.. Sergio i sturtunni, stefaniu sólbadsfélagann minn, jón sem býr inní thvottahusi og svo gunnar litla sem a thad til ad sniglast um a skolabokunum minum.. reyndar mjog erfitt ad spjalla vid thau og thau segja litid sem ekkert en eru samt agaetis skemmtun ;)..
fyrir tha sem eru ad spa hvada furduverur thetta eru tha eru thetta litlu kongulaernar minar og jon litla tarantula sem er staerri en hendin a mer! haha
 
aejiii nog af bulli.. seinustu dagar segidi

Sidasta vika;

Thridjudagur; Skóli as usual, mjog gaman satt ad segja :) um 3 leitid var svo haldid upp i San Marcos í afmaeli hja Tamoru dottur Adrionu systur minnar. Oll fjolskyldan stodd thar a bae og thad var etid, dansad og sungid og svaka gledskapur i gangi og svo um kvoldid skelltum eg mer i fobo med adrionu og vinkonum hennar og looooksins fekk eg ad spila almenninlegan bolta :D viij! god tilfinning skal eg segja ykkur godir halsar.

midvikudagur; Skoli once again.. fyndid ad segja fra thvi hvad eg er buin ad spilla thessu lidi herna.. ekkert oalgengt ad heyra ordin "hommi" "tussa" "tik" og "halfviti" og fleira sem er ekki internethaeft, fljuga til og fra i kennslustofunni og krakkarnir ad oskra tussa a islensku a kennarann og hann nottla skilur ekki baun.. og ja ekki gleyma "kjot" sem er oskrad a fyrrverandi dramavinkonur minar herna, thaer eru alltaf kalladar "los carnes" eda kjotstykkin haha.
Langar lika ad nefna thessa yndislegu jardskjalfta sem hrjadu okkur thennan dag, komu 2 med klst millibili og thad vard allt snarvitlaust i skolanum, folk hljop um eins og thad vaeri ad koma heimsendir og oskrudu ur ser lungun hehe.. alveg eins og i dyragardi! en spennandi :D
Kveldid var voda rolegt og eg skellti mer a foboltaleik hja strakunum med Lupe, Gracielu, Jaqueline og Brahndon og ja skrautlegt kveld, fer ekkert nanar ut i tha salma, en eg get sagt ykkur ad HK-ingarnir hefdu rullad strakunum upp med annarri ;)

Fimmtudagur; surprise surprise skoli.. engir jardskjalftar ollum til mikillar anegju.. en neineni datt theim ekki i hug ad halda thessa svaka messu i skolanum og thad var haldin messa inni i matsal og prestur og laeti, allir syngjandi velmennaroddu, eg reyndar let ekki sja mig thar sem eg er ekki katholsk en gaman ad thessu samt sem adur.
Eftir skola var svo skellt ser i "einkasundlaugina okkar" eda sundlaugina sem er i gardinum hja fraenda minum sem a hus herna i baenum en hann byr i USA nuna thannig vid erum med sundlaugina og husid utaffyrir okkur... og thad var tanad .. gaman gaman
Aetla lika ad deila thvi med ykkur hvad bekkurinn minn er aedislegur.. eg fekk ovart sma heimthra um morguninn og thau oll voda ahyggjufull ad spurja hvad vaeri ad og svo thegar eg sagdi theim ad eg saknadi islands kom thetta svaka "aaaaaawwwww" hljod og hlutir foru ad fljuga um stofuna (theim finnst voda gaman ad kasta einhverju i mig.. dont know why) og sidan kenndu thau mer oll blotsordin sem til eru i spaensku og kenndu mer ad dansa Salsa, Marenge og budu mer i party um helgina og svona skemmtó.. bjargadi deginum, an efa :*

Fostudagur; Thessi skoli er alveg ad fara a kostum, eitthvad nytt ad gerast a hverjum degi.. thau akvadu ad kveikja i ruslatunnunni og grasinu og vard ekki thessi gourmei eldur utum allt haha.. og skolastjorinn alveg snaaarvitlaus :D heheh
Kvoldid var tekid i tjill og horft a mynd med familyunni og lullad ser snemma..

Helgin;  sofid uuut og farid ut af borda med Nayudel og Masziel og svo var haldid i skirn og gauur thad er allt odruvisi system herna en heima.. krakkinn bara skirdur adur en hann faedist og vatnid sett a bumbuna a konunni..skondid jajajjaa
Kvoldid var tekid med trompi,, fjolskyldan var med party hja einkasundlauginni til ad safna pening fyrir fotboltalidid hans brodur mins og eg maetti thangad beint eftir skirnina asamt fjolskyldunni og sidan for folkid ad tinast inn og stelpurnar minar komu, Gracie, Jaqui og Nayi og vid vorum med svona "ladysnight" og vaaaaa thad var sko gaman .. vildi ad eg hefdi verid med myndavel :( okkur tokst allavega ad gera allan anskotans skandalinn eins og venjulega:D

Sunnudagur; sofid veel og lengi! Tjillad allan daginn, thvod fotin eins og venjulega a sunnudogum.. handthvo lombin min.. jaja enginn luxus herna nei! .
Um kvoldid for eg svo ut ad borda med Rosu, Milton og dúdda sem eg man ekki hvad heitir og sidan var haldid a ehrn Karoki-Bar herna i baenum og voda fjor, hitti vini mina ur skolanum, Willy, Mike, Felix og fleiri og thad var skemmt ser laaangt fram eftir nottu.. ekki snidugt thegar thad er skoli daginn eftir eeen fokk it ;)

Thessi vika; voda tidindalitil thvi miduuur..

A midvikudaginn skellti eg mer til san marcos, erudi ekki hissaaaa?? allavega ja tha for eg ad horfa a Lupe, Gabe, pepe og fleiri spila "voleibal! eda blak eins og thad kallast vist a islensku.. fiiint sku ;)

Thessi helgi; planid ad fara upp i hitt husid okkar sem er uppi fjollunum eda hus ef thad ma kalla thad thad, ekkert rafmagn, engin husgogn, bokstaflega bara 4 veggir, og fara i utilegu med familyunni og gabe litla og svo eitthvad party a sunn.. gaman gaman gaman :D

En thid hafid ekki gott af thvi ad lesa meira.. thid gaetud fengid illt i augun eda eitthvad alika thannig eg aetla ad lata thetta gott heita baara fyrir ykkur :D hugulsom er eg ekki satt..

Var ad henda inn myndum a facebook, thannig party a fjesinuuuu og ollum bodid :D

Sakna ykkar allra svo mikid:*
Adiós
Erla litla sem er ordin feit..

Yo encanta Costa Rica! Pura Vida

07. mars 2009 klukkan 03:04
Jæja jæja min kæru! Blogg ykkur til mikillar ánægju ☺ Úff ég veit ekki hvar ég á að byrja.. Lífið hérna skánar og skánar með hverjum deginum og mér er farið að líða eins og heima hjá mér. Ég ætla að reyna eftir bestu getu að rifja upp seinustu daga en ég lofa engu.. er með svoddan Alzheimer ☹ Virku dagarnir fara yfirleitt bara í skólann frá 7-hálf 5, gæti ekki verið styttra… en ég hitti þó á rétta árið til að fara út þar sem það er eitthvað verfall hjá kennörunum og þeir gefa okkur frí í tíma og ótíma, svo næs mmmm! Fékk til dæmis frí í heilan dag og ef ég skil “spænskuna” rétt þá fæ ég frí 1 dag í viku út allt árið! Þið megið öfunda mig :D Eftir skóla fer ég yfirleitt í fóbó með Gabe og strákunum þar sem það spilar ekki ein stelpa í þessu landi fótbolta.. svo mikil synd! Haha það var svo fyndið að sjá svipinn á þeim þegar ég sagðist spila fótbolta.. ég hef heyrt um að fólk “missi hökuna í gólfið” eða hvað sem það kallast en ég fékk að sjá það með eigin augun núna hahah;) Heyrðu svo langar mig líka að nefna það að stelpur hérna eru svona 5falt meiri dramadrottningar en heima! Sjaldan séð annað eins haha, þær hata einhverja stelpu bara því hún er hrifin af sama stráknum eða eitthvað álíka fatlað. Ég fékk að lenda í miðjuna á stærsta dramamálinu í skólanum, heppin ég! Það vill svo til að ég vingaðist við vitlausan vinahóp þegar ég kom hingað og það þolir þær enginn, eða voða fáir, í skólanum og þær voru alltaf að banna mér að tala við hina og þessa, sérstaklega 2 stelpur og svo systur mína hérna og ég veit ekki hvað og hvað, og ég þekkti engan annan þannig ég var með þeim og lét meira segja færa mig í bekkinn þeirra, mistök.. svo fór ég á ball um helgina og hitti þessa stelpu sem þær bönnuðu mér að tala við og ég spjallaði við hana og viti menn er hún ekki svakalega næs og góð og talar meirasegja góða ensku.. og svo í skólanum talaði ég aftur við hana og fékk drápsaugnaráð frá stelpunum í bakið og hún hjálpaði mér að skipta um bekk aftur og ég var færð í bekkinn hennar og loksins er ekki drepleiðinlegt í skólanum.. fyrir utan þetta yndislega augnaráð og baktal sem ég fæ frá hinum stelpunum ;) góð saga góð saga.. Nýji bekkurinn minn er awesome! Án efa steiktasta fólk í heimi í honum og þau eru öll svo næs að tala við mig og hjálpa mér og eitthvað skemmtilegt ☺ eeen yfir í aðra sálma.. Önnur helgin hérna var speees en mjög skemmtileg. Föstudaginn fórum við til San Marcos að hitta trúnaðarmanninn okkar hana Aliciu og hún er algjört æði. Bauð okkur að gista hjá sér hvenær sem við vildum ef við vildum djamma í San Marcos (það er svona 10 mín frá bænum okkar) og svo ef við vildum fara til San José og gista þá mættum við gista í húsinu hennar þar.. gott að vita og við eigum án efa eftir að misnota það ;) Um kvöldið þá skelltum við Gabe og strákarnir okkur út á Vidjóleigu og leigðum mynd og keyptum 2 tonn af snakki og súkkulaði og tjilluðum og fitnuðum eins og við fengjum borgað fyrir það. Laugardaginn þá fórum við systur mínar og Lupe, vinkona mín, í sund og tan í san marcos.. otrulega kosi.. Um kvöldið þá skelltum við okkur á ball hérna í bænum mínum og jiiiminn eini ég á ekki til orð haha.. þetta var svo öðruvísi frá íslenskum böllum! Ég voða sátt með lífið gerði mig til eins og ég myndi gera á íslandi og klæddi mig í “venjuleg djammföt” og hélt ég væri tilbúin en neeei voru stelpurnar ekki bara klæddar í gallabuxur og einhvern polo bol eða eitthvað voða simple eins og þær væru að fara í Kringluna eða eitthvað og ég var rekin inn í herbergi að skipta um föt og endaði í einhverju hræðilegasta átfitti sem sögur fara af haha.. gallapils stuttermabolur og Skólaskórnir mínir!! Liggur við að ég væri komin í strandarfíling þarna.. Allavega, þá fórum við á ballið og já, spænsk hiphop tónlist, enginn að dansa, mjööög vandræðalegt! haha.. en þetta skánaði seinna meir þegar fleira fólk kom.. Það er samt möst að kunna salsa og marenge hérna því annars ertu í feitum bobba á böllunum því allt í einu fara allir í einhverja sveiflu.. treysti mér ekki alveg í það þannig ég var bara á spjallinu þetta kvöldið ☺ Sunnudagurinn bara slappað af og sofið út.. finaly! Og svo tók skólinn við á mán og þri.. Á miðvikudaginn á hinn bóginn þá fórum við skiptinemarnir til San José til að taka fingraförin okkar og ég hitti alla hina litlu sætu skiptinemana ! án efa einn skemmtilegasti dagurinn hérna! :D Hitti Ingrid, Teresu, Helen, Zach, Gabe, Mitch og fuuullt af fleirum krílum og við fórum í Mollið og að skoða San José svo góð tilfining að geta tjáð sig á íslensku og geta sagt allt sem þú vilt án þess að líta út eins og retard! Tók fullt af myndum af þessu og ég hendi þeim inn very sooon! Kannski bara í dag ef þið eruð heppin. Svo um helgina er planið að fara á eitthvað ball á laugardaginn með gabe og co. og á sunnudaginn ætlum við Gabe, Lupe og fleiri að skella okkur í strandblak eins og það kallast víst á íslensku og tjlla í San Marcos og vonandi hitta Tesi og Ingrid litlu skiptinemana mina ;) Og svona í endann þá ætla ég að segja aðeins frá fjölskyldunni minni hérna.. Mamma er snillingur! Alltaf að dansa og syngja og gera eitthvað fíflalegt.. hún er mjög næs og reynir að kenna mér spænsku og sýna mér bæinn og fara með mig á svona helstu staði hérna í nágrenninu. Hún er algjört æði, ekki eins ströng og hún var fyrst ☺ Pabbi.. tja veit ekki hvað ég get sagt um hann þar sem hann vinnur og svo þegar hann kemur heim fer hann beint inn í herbergi að horfa á sjónvarpið og hann sést ekki fyrr en daginn eftir haha.. ekkert mikið að segja um það. Carlos (´25) Hann er fínn, vinnur alltaf heima og er mjög næs.. talar góða ensku og þarf oft að túlka fyrir mig haha… Mjög fínt að spjalla við hann ☺ Rosa (´26) bara eitt orð yfir hana, Yndi. Hún er frábær, tekst að gera sig skiljanlega á spænsku og er tilbúin að fara með mig allt og gera allt með mér. Juan (´18) Býr í San José á virkum dögum þannig ég er voða lítið búin að hitta hann en við spjöllum mikið þegar hann kemur heim.. hann er voða fínn greyið. Mazsiel (´14) Einbrún litla dúllan mín.. Hún bjargaði mér í skólanum svona til að byrja með og er dugleg að stinga upp að gera eitthvað skemmtilegt þegar okkur leiðist. Hún er mesta snúlla í geimi. Heyrðu já svo eiga þau víst týnda systur sem ég vissi ekkert af.. en hún er flutt að heiman;) sú heitir Adriana.. Gaman að segja frá því hvað allir eru frjálslegir hérna og ekkert óalgengt að sjá frændsystkini í sambandi og með krakka og læti.. eitt svoleiðs par í ættinni og svo annað sem býr við hliðiná mér.. En jæjaaa ég ætla að láta þetta gott heita í bili þar sem þið nennið örugglega ekki að lesa svona langt blogg.. Myndirar koma soooon þar sem ég er loksins búin að fá snúruna til að tengja við tölvuna so stay tuned :D PS! Biðst afsökunar á því hvernig bloggið lítur út... kerfið er eitthvað vangefið í augnablikinu.. eeen ég vona að þið hafið skililð þetta. Photobucket Þrír fílar lögðu af stað í leeeiðangur... Photobucket og þeim fannst svo gaman i flugvélinni i billjón klukkutíma.. Photobucket Yo y Marcus.. litli hommavinurinn minn :) Photobucket Án efa svalasta fólkið í þessu landi.. f.v. Gunnar (USA)- Mitch(Astralia?) - Joaquin(USA) - Beggi(Ísland) - fröken frakkland - og svo Zack(USA) þarna niðri :) Photobucket Ég og Rosa fyrstu helgina Photobucket ooog við fórum að tína kaffi.. Photobucket Ég á ógeðslega flottan skólabúning ekki þiiið! Photobucket Mazii, mami og ég í einhverjum gleðskap Photobucket ósköp eðlileg sjón.. 4 trylltir túristar í aftursæti á leigubíl.. Photobucket Ingrid litli norðverjinn minn - Hannah (USA) - Gabe hinn frægi - Anja (Sviss) og Kaio (Brasilia) Photobucket Juanita - ég að vera stór - Ingrid og Gabe Photobucket Ég og Teresa (Austurríki) á venjulegum miðvikudegi.. Photobucket ooog endum þetta á ósköp eðlilegri mynd af okkur :) Hasta luego mi amores:* Erla Björk

fyrsta vikan

24. febrúar 2009 klukkan 01:57
Jaeeja godir halsar.. eg aetla ad deila fyrstu vikunni minni herna med ykkur :D heppin thid! heheh

AFS budirnar voru awsome.. kynntist fullt af villtum skiptinemum.. serstaklega thessir fra bandarikjunum of svalir fyrir lifid.. og svo audvitad fullt af fleirum fra malasiu, svithjod noregi og svo sjalfbodalidarnir herna of miklir snillingar :) bara gott mal! ..
allavega.. a sunnudeginum tha kvoddum vid alla og forum i ruturnar og heldum af stad til ad hitta fjolskyldurnar okkar.. mamma min og systir min toku a moti mer med blom og sukkuladi og foru med mig heim. Husid mitt herna er alllt malad graent eins og oll hus herna virdast vera.. allt malad graent innan huss, dont know why haha. Svo var bara slappad af, farid med mig i naestu hus til ad kynna mig fyrir aettingjum og svona skemmtilegt og eg steinrotadist svo um kvoldid og svaf i svona 14 tima eda eh..


Manudagurinn; bara tjill.. kikti ut i solbad og var eh ad reyna ad babbla mig afram a spaensku vid mommu mina en thad gekk ekki alveg nogu vel haha, hun skildi ekki eitt ord.. vandraedalegt!..

Thridjudagurinn; annar tjill dagur.. solbad og eta var svona eiginlega thad eina sem eg gerdi, nema vid tokum sma rolt um baeinn herna sem er ogo kruttlegur.. gomul hus og frekar litill baer sem er byggdur i kringum fotboltavoll haha...


Midvikudagurinn; rise and shine klukkan half 6 -.- og farid i rutu til San José til ad kaupa skolabuninginn minn og versla eh meira smotteri.. Eg mamma og Mazii forum saman og vorum allan daginn :)
og okeei skolabuningurinn er hraedilegur.. helt eg aetladi ekki lengra thegar eg sa hann haha.. ljosbla karlmannsskyrta og dokkblaár buxur sem eru utvidar ad nedan eins og verstu hippabuxur og svon ljotustu skor sem eg hef a aevi minn sed hahaha.. drop dead gorgeous! Hendi inn mynd ad honum um leid og eg fae pakkan med myndavelasnurunni hingad ;)

Fimmtudagurinn; fyrsti skoladagurinn.. oneeeei! svaf ekki baun nottina a undan tvi eg var svo fokk stressud!  og svona an grins tha var thessi dagur hraedilegur haha! eg maetti i skolann klukkan 7 og vissi ekki baun hvar eg atti ad vera og thad voru svona um thad bil 500 augu ad stara a mig og hvisla og benda .. held ad oll skolalodin hafihorft a mig i einu.. frekar mikid othaeginlegt haha.. eg rolti inn a skrifstofuna til ad tjekka hvar eg atti ad vera en neinei tha talar enginn thar ensku og eg ekki skiljanlega spaensku herna, sma vesen var tharna i .. en svo kom enskukennarinn eins og engill og bjargadi mer og syndi mer stofuna mina:) 
eg labbadi inn i stofuna eins og allir ad horfa a mig svona"hvad ert thuad gera herna"augum voda gaman.. og enginn enskumaelandi.. ekki einusinni kennarinn haha thannig eg vissi ekki neitt hvad eg var ad gera, hvad eg var ad skrifa eda hvada fagi eg var i.. thau kunna reyndar ad segja eitt a ensku og thad er ; Welcome to the Jungle! .. fekk ad heyra thad nokkud oft haha.. og ja thau hafa oll eignast nytt ahugamal sem er ad segja eh vid mig a spaensku og hlaeja svo .. thad venst ;)

Fostudagurinn; byrjadi enganvegin vel haha.. maett klukkan 7 og tha var kennarinn minn veikur og eg aetladi bara heim og maeta aftur kl 10 thegar naesti timi byrjadi en neinei tha er hlid sem er lokad a medan skolatima stendur og vordur sem gaetir hlidsins haha.. og eg fann engan sem eg kannadist vid thannig eg settist bara nidur og var ad reyna ad laera spaensku i makindum minum.. svona halftima seinna tha komu svona 10 strakar og stilltu ser upp fyrir framan mig svona 10 metrum fra, og glaptu bara.. svona eiginlega vandraedalegasta moment lifs mins haha.. vissi ekkert hvernig eg atti ad vera en sowhat..
loksins var klukkan ordin 10 og eg maetti i naesta tima og hitti alvoru bekkinn minn og viti menn thar er naes folk og meirasegja stelpa sem talar ensku :) loksins eignadist eg nokkrar vinkonur vij haha.. lonley gella ;)
Kvoldid var bara tjill.. sat med muttu ad spjalla, borda hardfisk og horfa a fotbolta haha.. gourmei

Laugardagurinn; Eg og systur minar 2, Rosa y Mazsiel, forum i San Marcos sem er naesti baer vid herna og forum i sundlaugargard thar og vorum i solbadi og sundi aaallan daginn i 30 stiga hita.. mmm gerist ekkibetra! :D vodalega gaman..
Kvoldid for eg i eh afmaeli hja gellu sem byr nalaegt mer med mazi og lupe.. alveg agaett thar svoseeem.. nema eg for snemma heim tvi eg var svo threytt :)


Sunnudagurinn; Edal dagur.. forum i hus herna i baenum sem fraendi minn a held eg.. og thar er einkasundlaug og risastor gardur og eh.. for thangad med fjolskyldunni minni og svo komu svona 15 manns i vidbot.. adalega vinir braedra minna ;) og vid grilludum og tjilludum i solbadi og donsudum og eh svaka stud haha :D  um kvoldid foru mazii og lupe og leigdu mynd og vid klesstum okkur upp i sofa og bordudum snakk og svo kenndi eg theim islensku ;)

Manudagurinn; thridji skoladagurinn.. thetta skanar og skanar med hverjum deginum.. :)  hitti Kari bekkjarsystur mina a leidinni i skolann og vid forum samferda sem betur fer thannig eg var ekki eins og haena a haus ad reyna ad komast ad tvi i hvada stofu eg atti ad vera ;)
a manudogum og fimmtudogum er svona "especilitad" eda val og eg valdi "argoindustrial" eda ad elda og vid vorum ad laera um avexti fra 7-half 5.. hoooow fun (Y) en vid fengum koku sem bjargadi deginum :D
Eg er loksins komin med vinahop sem eg get hangid med haha.. 4 stelpur sem heita; Tracy, Verónica, Kari og Marcielle :)
Eftir skola for eg svo i fotbolta med Gabe, eina manneskjan herna sem eg get talad vid haha.. (skiptinemi fra bandarikjunum sem svona 2 min fra mer) og uff eg helt thetta vaeri ekkert mal. bara fara i halftima fotbolta en neinei haha mamma min spurdi svona 10 spurninga.. hevrnig eg aetladi, med hverjum, hvad eg aetladi ad vera lengi og svo framvegis.. svo odruvisi fra islandi.. en thetta reddadist og vid skelltum okkur i bolta :)

Lifid herna gengur bara goood .. samt frekar erfitt svona til ad byrja med en ogo gaman :D er ad meta ad lifa i 30 stiga hita a hverjum degi.. fjolskyldan min er frabaer! :) svo opin og skemmtileg og allir ad reyna ad gera allt fyrir mig og svona :)

Aetla ad skrifa nokkra punkta um thad sem er odruvisi herna fra islandi svona sem eg hef tekid eftir;
  • Skolinn byrjar alltaf a slaginu 7 og thu matt ekki fyrir thitt litla lif vera of seinn tvi annars lokast skolahlidid og thu kemst ekkert i skolann..
  • thu tharft ad fara i sturtu a hverjum einasta morgni, annars ertu ogedlegur.. matt ekki fara i sturtu kvoldinu adur tvi thu verdur ad vera ferskur fyrir daginn haha
  • thad er bara kalt vatn i sturtunum.. eg meina iiiiiiskalt!
  • thad er bannad ad henda klosettpappir i klosettid, thu att ad henda honum i ruslatunnuna vid hlidina klostinu,, frekar ogedslegt ..
  • thad eru hrisgrjon og baunir i morgunmat og hadegismat a hverjum degi
  • thad er aaallt malad graent herna, husin, skolinn, meirasegja budin er graen..
  • allir herna eru pinkulitlir og eg er eins og risi herna haha..
  • skolabuningar i skolanum
og eg gaeti talid upp fullt meira en eg nenni ekki :)
Aetla ad lata thetta gott heitaa i bili:D
Thad er eins gott ad allir kommenti sem ad nenna ad lesa thetta! ;) skylda
Myndirnar koma vooonandi fljotlega :D

Adiós, pura vida!!
Erla :)

Loksins loksins :)

14. febrúar 2009 klukkan 04:37
Jæjaaa þá erum við loksins komin til Costa Rica eftir laaaaangt, erfitt og skrautlegt ferðalag :D

Við mættum uppá flugvöllinn klukkan hálf 3 og kvöddum fjölskylduna okkar og svona og röltum af stað inní fríhöfnina og sáum alla þessa fínu hermenn :) voða gaman! Klukkan 17:00 flugum við svo af stað til Boston og já ekkert spennandi að segja frá því.. svo mættum við á flugvöllinn í Boston eins og einhverjir fæðingarhálfvitar vissum ekki baun hvar við áttum að vera og spurðum svo marga en villtumst alltaf haha gamangaman :D víj! tókum lyftuna svona 7x upp og niður til að leita að einhverjum strætó og vorum svo næstum því fari í leigubílastrætó og eitthvað voða skemmtinlegt :) 
Ooog þá tók við 13 klst bið í Boston og án gríns þá fór næstum allur tíminn í að leita sér að svefnstað og Dunkin Donuts! Við enduðum inní einhverju leikherbergi fyrir börn og við lögðumst niður og fórum að sofa.. nema það að við sváfum varla því það var alltaf einhver helvítis bjalla að hringja... en nóg um þetta! :D án efa það leiðinlegasta sem þið hafið lesið!

Svo þegar við lentum í San José þá hittum við 13 manna hóp af Bandarískum skiptinemum og fórum í rútu með þeim í svona 2 klst í gegnum borgina og erum núna komin á einhvern voða kósí stað þar sem eru svona fullt af herbergjum í hring og allt troðið af litlum sætum skiptinemum :D 

En ég ætla að láta þetta duga í bili þar sem ég er ekki búin að sofa nema 6 klst seinustu 48 tíma og ég ætla að detta í góðan svefn núna! :D 
Ætlaði bara að láta vita að ég væri lifandi! 

Adios y buenos noches! 
Erla sín :D

ps. set inn myndir um leið og ég fæ dæmið til að tengja myndavélina við tölvuna :)

og eeeeeitt í viðbót! það er 29 STIGA HIIIIIITI <3


Bless í bili :D

2 vikur :)

28. janúar 2009 klukkan 21:00
Jæja jæja.. akkúrat 2 vikur í dag :) Tíminn flýgur áfram og við verðum farin út áður en við vitum af! Allavega þá er ég byrjuð að undirbúa mig á fullu, pakka niður, kveðja hina og þessa og svoleiðis. En ég ætlaði ekkert að skrifa mikið, heldur henda inn nokkrum myndum af fjölskyldunni minni bara svona ykkur til skemmtunar :D Photobucket Mazsiel litla sys Photobucket Juan yngri stóri bró og vinkona hans :) Photobucket Frændi, amma og Mazii Photobucket Mami y nosotros perro.. mamma og sæti hundurinn okkar Photobucket Mamma sæta :) Photobucket Litli frændi og hinn hundurinn okkar held ég ! algjörar snúllur! :) Photobucket Rosa, Mazii og Mami skvísur Photobucket Mazsiel, voffinn okkar hún Lisa minnir mig.. og vinkona mazi :) Photobucket Rosa stóra sys Photobucket Carlos töffari Photobucket Carlos og vinkona hans Photobucket Amma og mazsiel Photobucket og ein af mömmu í lokin :) á því miður enga mynd af pabba.. en hún kemur vonandi fljótlega :) en ég efast um að ég bloggi fyrr en ég er komin út, þannig þangað til þá hafði það gott :D -Erla CostaRicafari

39 dagar!!

05. janúar 2009 klukkan 14:13

Jæja.. núna eru bara 39 dagar í brottför!
Veit ekki hvert ég ætla af spenningi :D!
En anyways þá er ég búin að hafa fullt samband við fjölskylduna mína þarna úti, aðalega systkini mín þó.. og já þau eru svona ljómandi spennt að fá mig :) Þau eru búin að senda mer fullt af myndum af sér og svona.. ég kannski hendi þeim hingað þegar ég nenni.
Mig langar líka að deila því með ykkur að ég er að fara í þetta þegar ég kem út!!

http://www.youtube.com/watch?v=Pv4GqaTFePU&feature=related

shiiiit það verður gaman :D


En þetta er nóg í bili.. varð bara að blogga aðeins og tjá mig..
Blogga örugglega ekki aftur fyrr en rétt áður en ég fer :D

Feliz año nuevo!
Adios

Erla

Erla Björk

  • Nafn: Erla Björk Jónsdóttir
  • Kennitala: 0909912219
  • Netfang: erla_hk@hotmail.com
  • Staður: Kópavogur City
  • Heimilisfang: Gnitaheiði 2
  • Símanúmer: 8495848
  • Atvinna: Ritari á landspítalanum og bakari í nóatúni
  • Hjúskaparstaða: Laus og liðug
  • Um mig: 17 ára stelpa sem er að fara sem skiptinemi til Costa Rica í feb 09 og kem heim í jan 2010 :)

Könnun

saknaru min? :D