Klakinn

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

COSTA RICA

Los Ticos Son Ricooos mae!!

21. apríl 2009 klukkan 02:02

Loksins blogg jajaja! 

Ég veit, langt síðan síðast en þið hafið gott af því að bíða..
Það er svo margt búið að gerast síðan síðast og tíminn líður hraðar en ég veit ekki hvað! Svona til að fræða ykkur þá er strax búið 1/4 af dvölinni hérna! :O

En jæja nóg af þvælu ooog nú kemur heill mánuður í grófum dráttum ;D

Síðastu helgin í mars var eitthvað svaka festival hérna í bænum og það var settur upp svona flóamarkaður og breiðtjald og stórt svið fyrir framan coopedota sem er miðpunkturinn í bænum og fremasta verksmiðja í heimi sem framleiðir kaffi.. allavega þá var svaka veisla alla helgina, fullt af fólki og voða gaman.. á föstudeginum kíkti ég þangað með Lup og Gabriel því strákarnir voru að spila .. hljómaði ekkert aaaalltof vel en maður býst ekkert við svaka framistöðu þegar 15 fífl koma saman og spila á lúðra og trommur haha en þeir voru ágætir greyin..
Laugardagurinn; skellt sér þarna niðreftir aftur að horfa á Mexico - Costa Rica á breiðtjaldinu með stelpunum mínum .. CR tapaði reyndar því miður :( 
Um kvöldið var svaka ball og jiiiiiminn hvað  það var gaman! Allir sem ég þekki voru mættir á svæðið því Kénald minn átti afmæli og það var dansað langt frameftir nóttu.. Ég verð bara að segja ykkur að þið eruð að missa af miklu þarna heima þar sem enginn spilar REGGEATON! án efa besta tónlist í heimiiiiii... Gotta love it! <3
Sunnudaginn skelltum við Gabe okkur til Cartago að heimsækja Helen, Zach og Gunnar.. fyrsta sinn sem við ferðuðumst ein hérna og það gekk eins og í sögu.. nema við týndumst nokkrum sinnum og misstum næstum því af síðustu rútunni heim en þetta reddaðist eins og venjulega :D
Við tjilluðum þarna í nokkra góða klukkutíma og löbbuðum um borgina og fleira vooooða gaman! alltaf gott að hitta litla íslendinginn minn og nokkra gringos og sletta úr klaufunum :D


<



Semana Santa!! eða páskafríið okkar sem er ein vika.. 
Fyrstu helgina fór ég til San José með Aliciu (trúnaðarmanninum okkar), Gabe, Rodolfo og fleirum og við gerðumst þessir fínu túristar þar sem þau vildu endilega kíkja á einhver söfn og Teatro National.. alveg ágætt þar skuuu. Um kvöldið skelltum við okkur í bíó í stærsta bíóhúsi sem ég hef séð.. 20 og eitthvað salir... og ég týndist :( en ég fann mig áður en myndin byrjaði! sáum þessa awsome mynd! en ég man ekki hvað hún heitir haha.. Sunnudagurinn var tekinn snemma og farið í Kaþólska messu, já góðir hálsar það er sko öðruvísi en á íslandi haha! allir mættu með svona pálmagrein því það var pálmasunnudagur og veifuðu þeim út um allt og kirkjan leit út eins og frumskógur og það var svaka athöfn þegar presturinn og svona 100 fleiri löbbuðu inn með styttu af jesú á asna og það voru reykvélar útum alla kirkju og lætiiii haha..

Mánudagur, rise and shine klukkan 6 í páskafríi, gerist varla betra! og haldið upp í El Rodeo þar sem familyan hennar muttu býr og við sóttum Franchescu og við stöllurnar skelltum okkur í sveitt og gott sólbað það sem eftir var af deginum, Thats life baby! 





Miðvikudagur; kaþólsk messa again, how fuuuuun.. nat. Eftir það skelltum við Gabe okkur til San Marcos að hitta Ingrid og Teresu og við fórum að veeeeersla! enda með þetta fína burðardýr með okkur hann Gabe..án efa Geðveikur dagur, við skemmtum okkur svo vel! :D







Skírdagur.. eða eggjadagurinn eins og ég ætla að kalla hann héðan í frá! Fórum við ömmu og afa að borða og öll stórfjölskyldan stödd þar á bæ og við borðuðum egg egg egg egg og meiri egg æj hvað heitir það þegar maður setur eggin á pönnu og steikir þau... man ekki hvernig á að segja það :/ ... allavega þið skiljið vonandi! við borðuðum 5 svoleiðs egg á mann takk fyrir og þið getið varla ýmindað ykkur hvað mér var illt í maganum eftir á eeeen þetta er víst hefð!

Föstudagurinn langi.. fórum í einhverja skrúðgöngu um bæinn þar sem var verið að líkja eftir því þegar Jesús var krossfestur og síðan fórum við í hádegismat hjá hinni ömmu minni og afa og það voru étin getiði hvað :D! EGG!! mmm 5 egg í viðbót og meiri illt í magann :)  Kvöldið var tekið í tjill og við horfðum á mynd ég Rosa, Juan og Jonathan voðalega kósí.

Helgin var fííín sku.. annað matarboð hjá fjölskyldunni og fleiri EGG!! en bara 4 í þetta skiptið... og tjill allan daginn með frændsystkinunum minum Masziel, Mario, Misael, Lupe og Pablo, ógó kósí :) Party í húsinu mínu um kvöldið og húsið fylltist af vinum bræðra minna og voða fjör þar á bæ, Arna þú kannski manst eftir því hahahah ;) 
Sunnudagur, haldið til Cartago að hitta Zach, Gunnar og Helen aftur.. litla annanhvernsunnudags hefðin okkar er alveg að gera sig. Smá tjill, spjall og túristastælar.. alltaf gaman að hitta þessar elskur :) og ekki verra að geta tjáð sig aðeins á íslensku við Helen! hún er ekki alveg að gera sig þessa dagana, ég á ekki til orð ég er búin að gleyma svo mörgum orðum! þetta er alveg ferlegt haha.. 

Helgin eftir þaaað MONSTERJAM!! svona fyrir þá sem ekki vita hvað það er þá er það bílasýning með svona trukkum sem gera allskonar listir og enda svo á því að rústa hvor öðrum og voða fínt :) anyways þá fór ég á það með fullt af feitum og fallegum skiptinemum, Helen, Zach, Gunnar, Gabe, Mitch, Erika, Magdalena og ég.. Hellaður dagur!!!





Skólinn gengur sinn vanagang og allt og allir voða vitlausir þarna.. get ekki fyrir mitt litla líf talið öll skiptin sem ég er búin að roðna í tætluuur inní tíma því þau eru að babbla eitthvað við mig á spænsku og ég skil ekki baun og allir hlæja að mér eða ég segi eitthvað bandvitlaust á spænsku sem þýðir allt annað en ég ætlaði að segja t.d. þegar það kom smá jarðskjálfti og ég ætlaði að vera voða sniðug og segja að það væri jarðskjálfti og voða sátt með lífið sagði ; Está Templado!! sem þýðir víst ertu graður í staðin fyrir esta tiemplo sem er það er jarðskjálfti haha.. en þetta er allt að venjast hægt og rólega ;)

Fjölskyldan mín hérna er best! fyrir utan fjölskylduna mína á íslandi <3 ég er án gríns svo heppin með fjölskyldu og myndi ekki skipta fyrir 5 aura :)
Ég er að lifa lífinu alveg til hins ýtrasta hérna og er svooo ánægð! Ekki búast við mér heim aftur heheh.. neinei ég segi svona, ég kíki kannski í heimsókn einhvertíman þegar ég nenni :) 

Annars er þetta orðið nokkuð langt og gott blogg!!

Elsku litlu rúsínurnar mínar.. það er eins gott fyrir ykkur að þið standið ykkur betur í kommentunum en síðast!! annars hætti ég að blogga :D

Sakna ykkar allra í tætlur :*
Erghla eða eeerla (ekki erdla eins og á íslandi) þau bera nafnið mitt fram svona greyin :)

 
Pabbi
Frábært blogg ástin mín. Það er æðislegt hvað þú skemmtir þér vel þarna úti. En í guðana bænum enga vitleysu eins og að fara að ná í kærasta þarna úti og ætla að setjast þarna að. Við viljum fá þig heim. Tíminn líður hratt og áður en þú veist af verður þú byrjuð að pakka saman fyrir heimferðina, svo það er um að gera að njóta hvers einasta dag í botn eins og mér sýnist þú vera að gera.

Bestu kveðjur að heiman og haltu áfram að njóta lífsins.
Ástarkveðja. Pabbi.
#1
21. apríl 2009 klukkan 10:09
 
Besta frænka
Hæ litla frænka. Frábært að heyra frá þér og að allt gangi svona vel hjá þér. Þú mátt alveg senda smá sólargeisla til okkar hérna í rigningunni...og kannski eitthvað af myndum af þessum brúnu sætu strákum sem eru allt í kringum þig:-))
Hafðu það áfram gott lilla mín og hlakka til að heyra frá þér aftur.

Saknaðarkveðja frá okkur öllum í Hafnarfirðinum
#2
21. apríl 2009 klukkan 10:44
Ohhh sammála. Á eftir að sakna tónlistarinnar hérna of mikið.. Svo glatað þegar fólk spyr við hvaða tónlist við dönsum eða hvernig við dönsum heima og ég bara uuuu. við eiginlega dönsum ekkert.. Allavega ekki eins og hér! Anywhoo gaman að heyra frá hvernig þetta er í Costa Rica og jaaá að ég sé ekki eina sem er farin að gleyma orðum í íslensku haah
#3
21. apríl 2009 klukkan 13:27
 
Ingunn frænka ;D
vááá hvað ég öfunda þig ;D en gaman að þú skemmtir þér og ég las meira að segja alllt blogggið ;D langar rosalega að fara svona út ;D váá ertu ekki orðinn hel tönuð og læti ;D
#4
21. apríl 2009 klukkan 18:29
 
Alvörumamman þín
Hæ krúttið mitt. Alltaf jafn skemmtilegt að lesa bloggin þín. Ekkert smá mikið að gera hjá þér - líklega er aldrei dauður tími hjá þér. Þú mátt alveg senda nokkra sólargeisla til okkar. Ég tek ekki í mál að fá þig í heimsókn - þú átt heima hér :-) En það heldur móðurhjartanu í mér rólegu að vita hve þér líður vel hjá fjölskyldunni ástin mín. Þú verður að knúsa þau frá mér.
Þúsund kossar og faðmlög til þín frá mömmu á Íslandi.
#5
21. apríl 2009 klukkan 19:07
 
Jenný June
Rosalega er þetta fllott blogg hjá þér Erla mín! uu okei bæ híhí sakni þinns;**
#6
21. apríl 2009 klukkan 21:46
 
Þórdís
vil byrja á að hrósa Jenny fyrir frábært comment!! en já hehe gaman að þú skemmtir þér svona vel elskan, haltu því áfram;* og það er bara eins gott fyrir þig að þú komir heim! ég sakna þín!...eníveis, kossar og knúsar til þín krútt!;*
#7
21. apríl 2009 klukkan 22:26
 
gunnsý;*
vá langt blogg haha :p samt gaman að lesa :D
og hahah finnst ekkert ólíklegt að þu hafir týnst greyið mitt :') það ert bara þú :D
líka með þetta í skólanum, ætlaðir að segja jarðskálfti haha kjánarassinn minn;*
en saaaakna þín sjúúklega mikið;**:(
#8
21. apríl 2009 klukkan 23:38
 
beee
gaman að fylgjast með þér stelpa :D ég sakna þín svo mikið að það er ekki hægt að lýsa því :O vantar alveg elvis hérna á íslandi:O vona að þú hafir það rosalega gott elskan mín :D ;** <3<3
#9
22. apríl 2009 klukkan 18:23
Los Ticos Son Ricooos mae !!! -- eg skildi thetta aaalveg sjalf an hjalpar fra costa risku systur minni ! :p jahh, min ad laera sma spaensku her :p

heyrdu geggjaad ad thu ert ad skemmta ter svona vel tarna !!
tad er alveg pott thett ad eg fae ad lengja i ar !! wuhu :D

seguite divirtiendo ;*
#10
23. apríl 2009 klukkan 16:22
 
Afi
Hæ Erla mín. Vona að þér líði vel. Ég er að skoða síðuna þína með aðstoð Árdísar og Sigrúnar. Afi er orðinn svo mikill tæknimaður. Passaðu þig á ljónunum og krókódílunum.

kær kveðja afi
#11
26. apríl 2009 klukkan 21:57
 
Kristín
hahaha Erla mín þú ert ágæt greyið ... sakna þín klikkað mikið, get ekki beðið eftir að fá þig með mér á sveitaböllin og svona !! :D elska þiiig ;**
og ég segji bara eins og afi þinn; passaðu þig á ljónunum og krókódílunum. heheheh
#12
04. maí 2009 klukkan 19:16
 
Ásta J
Elsku Erla, alltaf er jafn skemmtilegt að heyra frá þér þarna úti. Sorry hvað ég er sein að commenta. Farðu svo að blogga oftar litla mús, annars dugar facebook alltaf helvíti vel :)

Sakna þín. Þín vinkona Ásta
#13
10. maí 2009 klukkan 00:39
 
Ásta Kara
hæhæ erla min :*
ég sé að þú skemmtir þér konunglega þarna úti, vona að svínaflensan sé ekki komin til costa rica hehe :)

Maður saknar rosalega að sjá þig rúnta um hesthusahverfin ´ahenni freyju þinni.
En svo e rég að fara til þýskalands eftir 6 daga til að vinna á hestabúgarði þar :) þú öfundar mig eflaust allaveganna gerir arna það hehehe :D enkossar og knús ´aþig sæta :*

hlakka til að sjá þig eftir 3/4 því sem þú átt effitr af þessari yndislegu dvöl þinni

ps. gott að fjölskyldan útí sé svona yndislegt:*
#14
10. maí 2009 klukkan 22:00

Skrifa athugasemd

Erla Björk

  • Nafn: Erla Björk Jónsdóttir
  • Kennitala: 0909912219
  • Netfang: erla_hk@hotmail.com
  • Staður: Kópavogur City
  • Heimilisfang: Gnitaheiði 2
  • Símanúmer: 8495848
  • Atvinna: Ritari á landspítalanum og bakari í nóatúni
  • Hjúskaparstaða: Laus og liðug
  • Um mig: 17 ára stelpa sem er að fara sem skiptinemi til Costa Rica í feb 09 og kem heim í jan 2010 :)

Könnun

saknaru min? :D